3.10.2008 | 12:59
smá update af sætalíusi
Fór með litla sætalinginn minn til HNE læknis í fyrradag og skoðaði hann kútinn vel og vandlega, ekki leist honum neitt allt of vel á að hægt væri að svæfa þennan litla kút á næstunni nema hann yrði meðhöndlaður mjög vel áður með sýklalyfjum,pústi og sterum, hann tók það ekki í mál að taka nefkirlana hjá honum vegna þess hversu veikur hann er í lungum,,,,,,,en tók samt frá tíma næsta miðvikudag til þess aö reyna að setja rör,,,ætla ég að vona að það hjálpi og honum fari að líða betur. Svo nú er bara að krossa fingur og vona það besta.
Fórum svo og hittum lækninn okkar í gær,hann ákvað að gefa honum stóran skammt af sýklalyfi í vöðva, hann fékk skot í sitthvort lærið eins og venjulega OMG lærin á honum urðu fjórföld strax á eftir, hef bara aldrei séð annað eins einnig setti hann kútinn á stóran steraskammt sem hann á að vera á þangað til hann fer í aðgerðina á miðvikudaginn,,,,,,arrrrg,,,, hann á eftir að vera spinnigal af öllum þessum sterum, einnig verð ég að vera rosalega dugleg að pústa hann aukalega með öllum pústunum hans,svo fær hann væntanlega eitt skot í vöðva á þriðjudaginn. Ef þetta gengur vel ætti að vera hægt að svæfa hann....Ég verð að játa það að ég hlakka ekkert sérlega mikið til þess að fara með hann í svæfingu,,,hef alltaf verið soddan ógurlegur kjúklingur þegar verið er að svæfa börnin mín,finnst það alltaf jafn óþæginlegt að horfa á þau sofna sérstaklega þegar ég hef þurft að halda á þeim í fanginu (sem eru nokkur skipti)þegar þau eru svæfð En þetta er víst bara hluti af því að eiga veikt barn.
Mynd af sætalingi síðan um daginn þegar við vorum á Lansa í smá rannsóknum..
Hér eru þau systkinin á leið í háttinn
Krúttmundur bara sætastur.
Svo þarf nú að ryksuga áður en farið er í háttinn
Knúsið hvort annað í kuldanum
Um bloggið
Skruddulina
Nýjustu færslur
- 27.10.2008 Það er svo sem ekkert að frétta.....
- 8.10.2008 allt gekk vel í dag :)
- 7.10.2008 hef þetta bara stutt núna.....
- 3.10.2008 smá update af sætalíusi
- 1.10.2008 Lítið sem ekkert að gerast á þessum bæ.....
Tenglar
Mínir tenglar
Myndaalbúm
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hehe við erum bara að ganga i gegnum það sama nánast
Gangi ykkur mjög vel,hugsum til ykkar...
Kossar og knúss
Erna Sif Gunnarsdóttir, 3.10.2008 kl. 19:15
Úff púff, vonandi virka þessi sýklalyf nú nógu vel á greyið :( Verst að það er ekki hægt að taka nefkirtlana í leiðinni!
Halldóra F Sigurgeirsdóttir (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 21:54
Elsku litli kúturinn hennar Mundu frænku, rosalega er langt síðan ég hef séð ykkur. Allir eru svo breyttir eitthvað, verðum að fara að gera eitthvað í þessu Guðrún mín.
Knús til ykkar allra,
Frá Vallargenginu.
Munda frænka (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 23:51
langadi bara ad kvitta fyrir kíkkid ....Var bara forvitin vegna nafnsins .
Kvedja frá Jyderup
Gudrún Hauksdóttir
Gudrún Hauksdótttir, 5.10.2008 kl. 08:58
Jamm, haustið er komið með sinni flensu! Höfum legið alla helgina hér í H42 - Láran þó alltaf í stuði. Hún sá um menninguna á þessu heimili þessa helgina - flandraðist á milli leikhúss, kaffihúsa og listsýninga :)
En - hugsum til ykkar - eins og ávallt. Það sama munum við gera í þessari viku og sérstaklega á miðvikudaginn!
Kv. Gurran :)
Gurra (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 20:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.