8.10.2008 | 22:29
allt gekk vel í dag :)
Við vorum mætt kl 9 í morgun inn í Reykjavík eftir frekar lítinn nætursvefn, þeir bræður voru vakandi frá hálf eitt til klukkan rúmlega fjögur í nótt svo vaknaði ég um 6:40 til þess að koma öllum á sinn stað. Ég ákvað það í gærkvöldi að plata Thelmu mína með mér í þetta, sem hún auðvitað gerði þrátt fyrir að þurfa að taka sér frí í skólanum, er svooo mikið yndi þessi stelpa (hægri hönd mömmu sinnar)hvar væri ég án hennar
hehe.. Jæja, svæfingin gekk bara þokkalega,hann varð auðvitað alveg snar brjál þegar átti að fara að svæfa hann ,svo ég þurfti að halda á honum þangað til hann sofnaði
... greyið litla, um leið og hann var sofnaður runnu tár hja mér uhuhu, ég bara get ekki vanist þessu :( þeð byrjaði að kurraði í honum um leið og hann var sofnaður og það kurraði vel í honum þegar hann vaknaði, mettun var um 92-94. það gekk bara vel að setja í hann rörin en ekki vildi hann taka nefkirlana hjá honum
þegar við ætluðum svo að fara heim þá var hann allur eldrauður í andliti og niður á bringu, mér brá pínu og spurði þau hvort þetta væri eðlilegt þau sögðu þetta vera viðbrögð við svæfingunni þetta kæmi fyrir hjá einstaka börnum,,,,mér létti og var tilbúin að fara með hann heim.....dagurinn hefur verið frekar erfiður,,, mikið ergelsi í gangi hjá honum og bara mömmufang,,,, það hefur svosem verið í lagi því ég drattaðist loksins til læknis á þriðjudaginn og fékk sprautur í vinstri öxlina, fór einnig í blóðprufu og á svo tíma í segulómun í byrjun nóv :) læknirinn sagði mér að það væru skemmdir í sinum á tveimur stöðum í vinstri öxlinni
sem kom í ljós í síðustu ómskoðun sem nótabene var í janúar úppsídúbbs hef ekkert leitað eftir svörum úr þeirri myndatöku áður, ég veit ég er trassi með sjálfa mig :( svona er þetta bara.....
Jæja,ég er að hugsa um að reyna að fara að skríða uppí, er eitthvað svo lúin eftir þennan dag.....veitir ekki af hvíldinni því ég er jú að fara á Villa Vill minningar tónleikana á föstudagskvöldið hlakka geggjað til....
Ykkur er alveg óhætt að kvitta fyrir komu ykkar, það er ekkert nauðsynlegt, bara gaman fyrir mig .
Hafið það ávallt sem allra best, knús á ykkur inn í nóttina
Um bloggið
Skruddulina
Nýjustu færslur
- 27.10.2008 Það er svo sem ekkert að frétta.....
- 8.10.2008 allt gekk vel í dag :)
- 7.10.2008 hef þetta bara stutt núna.....
- 3.10.2008 smá update af sætalíusi
- 1.10.2008 Lítið sem ekkert að gerast á þessum bæ.....
Tenglar
Mínir tenglar
Myndaalbúm
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Úff léttir að heyra að allt gekk vel hjá ykkur,nú er það bara að ná góðum bataveigi.
Og muna Guðrún hvila sig svona inn á milli þegar þú getur
Þússund kossar.....
Erna Sif Gunnarsdóttir, 8.10.2008 kl. 23:08
Reyndu að sofa smá kona góð! Gott að allt gekk vel í dag, verst að það var ekki hægt að taka nefkirtlana líka :( Vonandi verður það hægt fljótlega!
Knús á ykkur :)
Halldóra F Sigurgeirsdóttir (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 08:37
Knúsi knús... gott að heyra að þið hafið það gott...
Margrét Ingibjörg Lindquist, 10.10.2008 kl. 18:13
Vonandi ertu búin að ná eitthvað að hvíla þig. Það tekur sko á að vera með veik börn, láttu mig þekkja það.
Hafðu það gott kæra blogg og facebook vinkona og ég bið að heilsa þá í bili.
Hulda Sigurðardóttir, 13.10.2008 kl. 14:11
Brynja skordal, 14.10.2008 kl. 14:17
Hafðu ljúfa helgi Elskuleg
Brynja skordal, 17.10.2008 kl. 13:36
vá hvað ég er löt að kvitta en ég er rosalega dúleg að lesa hehe :) langar að fara að fá nýtt blogg sæta, knús í klessu sæta mín
Þórunn Eva , 20.10.2008 kl. 17:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.