19.5.2008 | 13:06
Yndisleg helgi að baki
Ég átti alveg yndislega helgi. Brúðkaupið var hreint út sagt frábært, að sjálfsögðu vældi ég þegar brúðhjónin gengu í salinn, mér finnst fátt yndislegra . Mikið dansað og sungið í þessu brúðkaupi og vaknaði ég rám og með strengi daginn eftir :) Váá´hvað ég skemmti mér vel
Á laugardeginum skelltu við okkur svo í smá afganga til þeirra því brúðguminn átti jú 40 ára afmæli þann dag :)
Litlli kútur er ekkert búinn að vera neitt sérlega hress síðustu daga,hann er enn með hita og verið frekar slæmur í llitlu lungunum sínum, pínu mikill piirulíus Thelma mín átti svolítið erfitt með að passa hann meðan við vorum í veislunni því hún hélt oft að hann væri að kafna, en það hafðist allt hjá henni, duglegu stelpunni minni :) Nú er hún á leið í Skagafjörðinn í þriggja daga skólaferðalag nýkomin heim ( föstud) úr þriggja daga ferðalagi sem hún fór í með unglingadeildinni (Björunnarsveitinni). þvílíkt mikið að gera hja þessari sætu skvísu.
En þá er það stóra spurningin......... þarf klósettpappír endilega að vera hvítur ? ........ég bara spyr ,því ég álpaðist til þess að kaupa eina pakkningu af bláum rúllum og guð minn góður hvað það er búið að fara í taugarnar á heimilisfólkinu hér á bæ,bæði stórum og smáum....hahaha .ekki er ég að skilja af hverju það skiptir máli hvernig pappírinn er á litinn...........kaupi aldrei aftur bláan klósettpappír því get ég lofað hahaha
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 19. maí 2008
Um bloggið
Skruddulina
Nýjustu færslur
- 27.10.2008 Það er svo sem ekkert að frétta.....
- 8.10.2008 allt gekk vel í dag :)
- 7.10.2008 hef þetta bara stutt núna.....
- 3.10.2008 smá update af sætalíusi
- 1.10.2008 Lítið sem ekkert að gerast á þessum bæ.....
Tenglar
Mínir tenglar
Myndaalbúm
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar