Dásamlegt sumardagurinn fyrsti á morgun.

Já sumarið er tími gleðinnar ,alltaf verð ég jafn ánægð þegar sumarið er skollið á. Þá fara börnin út að leika og hanga ekki inni i tölvuleikjum eða yfir sjónvarpinu. Ég sakna þess að sjá börnin ekki í þeim hópleikjum sem voru stundaðir þegar ég var yngri td.brennó,stófiskaleik,ein króna og teyjutvist. hehe  Ég held hreinlega að flestir séu hamingjusamari og jákvæðari á sumrin.

Það er aðeins tvennt sem ég þoli illa yfir sumatímann, það eru geitungar og köngulær omg ég hreinlega hata þessi kvikindi :(

Þessa dagana er ég aðeins að sleppa hendinni af skottunni þ.e.a.s leyfa henni að fara aðeins lengra en að enda götunnar sem við búum við., og ætlar hún ekki að láta segja sér það tvisvar að hún megi nú fara aðeins í burtu með vinum. síðastliðinn föstudag var hún úti að leika sér við fullt af krökkum ,svo þegar hún átti að fara að koma inn þá fann ég hana ekki og byrjaði að hringja hús úr húsi til að athuga hvort hún væri þar en allstaðar var svarið NEI hún var að fara, svo loksins skilaði hún sér heim þá sagði ég nú við hana að þetta væri ekki að ganga að ég  hefði verið orðin hrædd og farin að sakna hennar, þá svaraði mín kona því til að hún hefði nú líka verið farin að sakna mín en  ÞAÐ SÉ NÚ BARA ORÐIÐ TÍMABÆRT AÐ HÚN FÁI AÐ EIGA SÉR SITT EIGIÐ LÍF :) LITLA SKOTTAN BARA  6 ára. Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru englar og krútt, HK klikkar ekki á skemmtilegheitunum. Elsku litli Sveinninn er nú alveg ótrúlega "horaður" á myndinni  Gott hjá þér að blogga, elskan

Kristbjörg Clausen (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 14:27

2 identicon

Haha! Góð! :)

Vona að litla krúttinu fari nú að líða betur, það er ekkert gaman að vera lasinn :( 

Halldóra F Sigurgeirsdóttir (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 17:16

3 Smámynd: Þórunn Eva

knús knús finally... hehehheheh ;)

Þórunn Eva , 23.4.2008 kl. 22:59

4 Smámynd: Fjóla Æ.

Þú verður kannski bara að hengja á hana GSM fyrst hún er orðin það gömul að geta átt sitt eigið líf.

Fjóla Æ., 25.4.2008 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddulina

Höfundur

Guðrún Hauksdóttir
Guðrún Hauksdóttir

 Sumarið er tíminn :) Ég er 39 ára kona sem lætur sig varða málefni langveikra barna. Stolt 5 barna móðir og eiginkona .

garuska@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 950

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • 172
  • 149
  • 144
  • 095
  • oktober 062

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband