Náttúruhamfarir.

Í gærkvöldi var ég að horfa á fyrri hluta framhaldsmyndar mánaðarins á stöð 2...... guð minn góður hvað þetta er hrikalegt þegar náttúruöflin taka völdin. Ég hræðist ekkert meira í þessu lífi en jarðskálfta ég  tapa mér algjörlega þegar ég finn fyrir jarðskjálfta. Við erum svo berskjölduð fyrir náttúhamförum ,við fáum engu breytt þegar eitthvað fer af stað t.d jarðskjálftar, hvirfilbylir, snjóflóð, eldgos,flóðbylgjur og eitthvað þessháttar :(  æjæjæj mig hryllir við þessu ,það hafa svo margir týnt lífi í náttúruhamförum það er svo sorglegt að geta ekkert gert til að breyta því :(  ætla samt að horfa á seinni hlutann í kvöld.

En við mannfólkð getum hinsvegar breytt  ýmsu svo fólk þurfi ekki að týna lífi t.d í bílslysum...... var að lesa bloggið hjá móðursystur minni henni Olgu og er löngu orðið tímabært að gera eitthvað í þessu með tvöföldun Suðurlandsvegar.... mikið sem ég verð alltaf reið þegar að einhver deyr á þessum vegakafla það er svo vel hægt fækka öllum þessum banaslysum, bara með tvöföldun vegar..........Einnig verð ég afar glöð þegar Reykjanesbrautin verður tilbúin þ.e.a.s búið verður að tvöfalda alla leið í báðar áttir :) þið getið lesið bloggið hjá henni elskulegu ,fallegu,skemmtilegu og jákvæðu móðursystur minni hér http://bitill.blog.is/blog/bitill/.

Hér er svo myndir sem ég tók í gærkvöldi af  litla duglega  drengnum mömmu sinnar:)

Mai 031Mai 034


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Sigurðardóttir

Jiiii hvað maður er nú dætur hahaha. Mér finnst svo langt síðan Helena var svona en samt svo stutt síðan.

Já ég er svo sammála þér með það að það er löngu kominn tími á að tvöfalda vegin allan hringinn hreinlega. Bara fyrir ofan húsið mitt sé ég bílslys alla vega 4-5 sinnum á ári bara út um eldhúsgluggann. Ef að það er ekki fólk sem slasar sig þá er það eignartjón sem fólkið verður fyrir ( ég er sko á Kjalarnesinu ).  Svo er fólk að taka fram úr á verstu stöðum og eða keyra í veg fyrir mann bara af því að vegurinn er einfaldur og fólk er að flýta sér um of.

En sorglegt slysið í Kömbunum í gær, úff ég tárast bara við tilhugsunina

En svo má maður ekki vera að velta sér upp úr hlutunum eins og eftir myndina í gær sem að ég horfði á líka. Efr að ég fer að hræðast allt svona þet ég alveg eins læst mig inni og beðið eftir að eitthvað hræðilegt gerist. Eff að svona lagað gerist þá er ekkert við því að gera  og tekur maður á því þegar þar að kemur ekki satt.

 Kv. Hulda

Hulda Sigurðardóttir, 5.5.2008 kl. 15:42

2 identicon

Jæja krúttin mín.

Sá stutti kominn í skriðgírinn og er þá best að fara að forða helstu fjölskyldudjásnunum , eins og.......... nei nei fjölskyldudjásnin eru ekki fjölskyldudjásn nema þau þoli ungar hendur .

Elska ykkur snúllur.

Kveðja pabbi.

Bessi A Sveinsson (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 22:52

3 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

hihihi hann er algjört æði...

Halla Vilbergsdóttir, 6.5.2008 kl. 22:03

4 identicon

Hann er algjör snúlli :D

Halldóra F Sigurgeirsdóttir (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 09:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddulina

Höfundur

Guðrún Hauksdóttir
Guðrún Hauksdóttir

 Sumarið er tíminn :) Ég er 39 ára kona sem lætur sig varða málefni langveikra barna. Stolt 5 barna móðir og eiginkona .

garuska@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 967

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • 172
  • 149
  • 144
  • 095
  • oktober 062

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband