12 júlí

 

Ussuss  allt of langt síðan síðast. 

Síðastliðin sunnudag hóaði ég stórfjölskyldunni saman á Þingvelli með nesti og nýja skó, geggjaður dagur í 23 stiga hita........vááá hvað ég elska þessa fjölskyldu mína InLove  Svo á mánudeginum fórum við ég og bóndinn með krakkana í Selskóg og nutum veðurblíðunnar :) á þriðjudeginum skunduðum við svo aftur á Þingvelli þ.e.a.s. ég og börnin ,áttum þar enn einn yndislegan dag með frændsystkinum. Klárlega komu Þingvellir sterkir inn þessa vikuna Smile æji það er svo gaman að vera saman í góðu veðri.

Krúttmundur litli bara úti þrjá daga í röð W00t þá var það líka komið hjá honum, byrjað að kurra í honum og hann sólbrenndur á höndum og í andliti :( vorum við litli kútur því inni það sem eftir var vikunnar.

Fimmtudagurinn var frekar erfiður, ég og skottan fórum í kyrrðarstund í kirkjunni .  Lítil sönn hetja Andri Meyvantsson tapaði því miður stríðinu við illvígan sjúkdóm aðeins 6 ára gamall. Kyrrðarstundin var haldin fyrir jafnaldra Andra og Sindra bróður hans. Mikið sem ég finn til með foreldrum hans og bróður. Andri og Hulda Karen voru búin að vera saman í leikskóla og skóla frá því þau voru bara lítil stýri, við þekktum hann svo sem ekki mikið utan þess.

Set hér inn mynd sem tekin var af Andra og skottunni í fimm ára afmæli skottunnar.

Desember 077

       Heart Blessuð sé minning hans Heart

Jæja þá er það 12 júlí afmælisdagur margra, þar á meðal mín. Jamm ég á víst afmæli í dag Smile einnig á hann pabbi minn afmæli í dag nú svo á hann Daníel Ísak sonur Mundu vinkonu líka afmæli, Gunna Munda Systir hans Bjössa mágs á líka afmæli í dag. Svo eiga Elín systir og Bjössi hennar ekta maður brúðkaupsafmæli í dag InLove Til lukku öll með þennan frábæra dag :) Ekki gat litli stúfur sleppt því að senda múttuna sína með sig til doksa í dag :( en múttan er ekkert að erfa það við prinsinn því hann varð jú að fá sýklalyf því hann er komin með í eyrun eina ferðina enn.....litla skinnið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Til hamingju með daginn mín kæra

Róslín A. Valdemarsdóttir, 12.7.2008 kl. 23:19

2 identicon

Til hamingju með afmælið :)

Halldóra F Sigurgeirsdóttir (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 10:20

3 identicon

Hola skvís og til lukku með daginn ætlaði svo sem að heyra í þér ? í kvöld eða bara á morgun ef það verður nóg að gera hjá þér.Já og ég viðurkenni að það var farið að vanta smá línur frá þér var farin að sakna þess að sjá smá skrif. En nóg í bili heurumst krús.

heija gummi og börn spáni (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 14:51

4 Smámynd: Sóley Valdimarsdóttir

Til hamingju með afmælið.

Sóley Valdimarsdóttir, 13.7.2008 kl. 20:54

5 Smámynd: Erna Björk Svavarsdóttir

En og aftur til hamingju með afmælið sætust

Kv. Erna

Erna Björk Svavarsdóttir, 14.7.2008 kl. 00:56

6 Smámynd: Hulda Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með afmælið á laugardaginn Guðrún mín.

Ég er svo sammála þér að það er geggjað að vera á þingvöllum. Við fórum í Skorradalinn um þar síðustu helgi og nutum veðurblíðunnar þar og þar er líka geggjað að vera. Ég ætlaði að vera dugleg að fara í ljós fyrir stóra daginn ehn hef ekki verið það þannig að núna get ég ekkert farið af því að stelpan er komin í frí og ég hef engan til að vera með hana á meðan. En ég verð þá bara að sýna á mér mitt sólbrenda bak á brúðkaupsdaginn

Leiðinlegt að heyra að litli maðurinn sé orðinn svona lasinn aftur. Vonandi verður hann fljótur að rífa þetta úr sér og að hann verði kominn á ról eins og hermaður Hann er svo sætur.

Hulda Sigurðardóttir, 14.7.2008 kl. 11:33

7 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Takk takk fyrir kveðjurnar......

Guðrún Hauksdóttir, 14.7.2008 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddulina

Höfundur

Guðrún Hauksdóttir
Guðrún Hauksdóttir

 Sumarið er tíminn :) Ég er 39 ára kona sem lætur sig varða málefni langveikra barna. Stolt 5 barna móðir og eiginkona .

garuska@simnet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 931

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • 172
  • 149
  • 144
  • 095
  • oktober 062

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband