Er ekki alveg með nennuna í að blogga

Er ekki alveg með nennuna í að blogga þessa dagana, kannski nennan komi fljótlega aftur:) hehe les samt alltaf reglulega hjá bloggvinum en kommenta ekki alltaf :(

Annars héldum við upp á afmæli prinsanna um síðustu helgi, rosalega sem við vorum ánægð með það að mér skildi hafa dottið í hug að halda veisluna í Selskógi, krakkarnir voru þvílíkt hamingjusöm með það Smile það komu um 40 manns, ekki komust nú allir enda sumartími. Grilluðum við bara pylsur með allskonar gummelaði ( þurftum að vísu að drösla grillinu okkar á staðinn) bestar þykja mér pylsur með kartöflusalati , bbq sósu og dijon hunangssósu nammi namm :) einnig pantaði ég tvær afmæliskökur Bangsimon fyrir krúttmund litla og StarWars fyrir krúttmund stóra Kissing Star Wars kakan var nú alveg að hitta í mark hjá gaurunum , við hin fengum okkur smábarnaköku eða Bangsimon :) hehe... krakkarnir kátir með að geta bara valsað um í góða veðrinu þau fóru t.d í fótbolta ( fórum með markið hans Jóa þangað) röltu inn í skóginn, flugu flugdreka og fl.  barasta hinn ánægjulegasti dagur....þeir fengu líka svakalega fínar afmælisgjafir...... takk æðislega fyrir allar fallegu gjafirnar elskulegu vinir og vandamenn :) Knús og kossar

Jæja, þá er ég búin að endurheimta hana Thelmu mína frá Genf, hún var þar í tvær vikur, allamalla hvað við söknuðum hennar :) skottan er svo mikil dramadrottning að hún sofnaði nokkrum sinnum með mynd af Thelmu í fanginu æji bara sætt, hún elskar systur sína ekkert smá mikið HeartJóa var nú líka pínu illt í hjartanu sínu af söknuði. Það er nú augljóst mál að mín kona er að fá hvolpavitið hahaha Grin kannski ekki skrýtið er að verða sextán ára ( alltaf litla deppan mömmu sín) það fyrsta sem hún sagði við mig þegar ég talaði við hana í síma var: mamma.... þjálfararnir eru sko ógisslega hot :) hehe..... er varla búin að tala um annað síðan hún kom heim :) staldrar hún bara heimavið í þrjár vikur og er svo þotin til Þýskalands :(

Guð veri með ykkur.

Úpps.... ég gleymdi, þið ykkar sem höfðuð áhyggjur af því að ég væri að ganga frá drengjunum mínum með því að halda upp á afmælið þótt þeir væru veikir...þeim varð ekki meint af Joyful Jói er að verða hitalaus og litli kútur er allur að koma til :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Sigurðardóttir

Til hamingju með litlu prinsana þína, ég hefði sko alveg verið til í að vera með  Þetta hlítur að hafa verið voða gaman.

 En takk fyrir allar kveðjurnar

Hulda Sigurðardóttir, 25.7.2008 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddulina

Höfundur

Guðrún Hauksdóttir
Guðrún Hauksdóttir

 Sumarið er tíminn :) Ég er 39 ára kona sem lætur sig varða málefni langveikra barna. Stolt 5 barna móðir og eiginkona .

garuska@simnet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 932

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • 172
  • 149
  • 144
  • 095
  • oktober 062

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband