10.6.2008 | 23:39
Krúttmundur kvartsári
Þessi dagur var frekar erfiður hjá krúttmundi litla :( eftir lítinn sem engan nætursvefn vorum við mætt á Lansa rétt fyrir níu í morgun, byrjuðum á því að hringsóla í ca 10 - 15 mín í leit að bílastæði getur það verið að erfitt sé að fá stæði þar hmmm.
Lena tók á móti okkur og byrjaði að hafa til lyfin meðan læknanemi skoðai lilla boy, kom þá í ljós að hann er kominn með eyrnabólgur í bæði eyrun sín, lungun eru bara þokkaleg.....einnig er hann með einhvern vibba í kringum annað augað og munninn en hún gat svo sem ekki sagt mér hvað þetta er ;/ eftir skoðun var komið að því að finna hentuga æð fyrir legginn, auðvitað gekk það ekki vel frekar en fyrri daginn og var minn maður ekki neitt sérstaklega ánægður með þessa meðferð, láta stinga sig aftur og aftur hann lét þær sko í sér heyra......æji :( hvað mér þykir þetta alltaf jafn erfitt.
Hann var frekar ergilegur í dag og grét mikið, mátti helst ekki yrða á hann og vildi hann bara láta mig ganga með sig um gangana úffff hvað ég er orðin þreytt í skrokknum, aftur farin að þurfa að taka íbufen við verkjum í öxlum og baki, það tekur á að ganga í nokkra tíma með 10 kíló nánast alla daga. Hann sígur sko þokkalega vel í þessi elska :) Lena gaf honum svo tvo stíla og leið honum þá aðeins betur :)
Loks kom höfðinginn hann Ásgeir, kíkti á kauða og hélt jafnvel að þetta hjá auganu og munninum væri handa- fóta og munn vesenið (ginið og klaufinn) Ásgeir tók sýni til ræktunar úr nefinu á Krúttmundi og ákvað að gefa honum sýklalyf í æð út af eyrunum og vildi hann að leggurinn yrði ekki tekin því hann á að fá aðra lyfjagjöf í æð á fimmtudaginn. Þá ætlar hann að kíkja betur á hann...
Ekki hefur mér gengið neitt sérlega vel með þessa færslu því krútti litli er alltaf að vakna svo ég nenni ekki meiru í kvöld. Er líka orðin frekar dofin af þreytu.
Góða nótt og guð geymi ykkur
Um bloggið
Skruddulina
Nýjustu færslur
- 27.10.2008 Það er svo sem ekkert að frétta.....
- 8.10.2008 allt gekk vel í dag :)
- 7.10.2008 hef þetta bara stutt núna.....
- 3.10.2008 smá update af sætalíusi
- 1.10.2008 Lítið sem ekkert að gerast á þessum bæ.....
Tenglar
Mínir tenglar
Myndaalbúm
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
æ litli kúturinn!
Það var sko verst þegar átti að setja stíl í rassinn á manni, það var verra en rassskellingarnar skal ég segja þér!
Vonandi fer litli kúturinn að ná sér, það er örugglega þvílíkur sársauki þegar maður er svona lítill að vera svona veikur!!
Knús inn í svefninn
Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.6.2008 kl. 23:46
Það er BANNAÐ að rasskella börn
Knús í svefninn sömuleiðis
Guðrún Hauksdóttir, 11.6.2008 kl. 00:05
Voandi er litli kútur að jafna sig. Meðferðin gekk vonandi vel í dag. Hún þrælvirkaði á Heleniu á sínum tíma og hjálpar ónæmiskerfinu að byggjast upp.
Góða nótt og vonandi nærðu að sofa í alla nótt.
Hulda Sigurðardóttir, 11.6.2008 kl. 00:39
Englarnir mínir
Kristbjörg Clausen (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 10:36
vá hvað ég er ánægð að heyra að leggurinn skildi ekki vera tekin og vonandi gengur allt vel.... loks farið að gera eitthvað fyrir hann þessa elsku.... og takk fyrir smsið í morgun.... knús knús á þig sæta mín....
Þórunn Eva , 11.6.2008 kl. 20:26
Það var nú lítið Þórunn mín
Guðrún Hauksdóttir, 12.6.2008 kl. 01:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.