Svoooo vansæll ræfilstuskan.

þetta hafa ekki verið neitt rosalega góðir dagar hjá litla kútnum mínum :( vorum allan gærdag inná Lansa, þeir voru að reyna að létta honum öndunina því hann var farin að anda svo stutta innöndun  og erfiða svo mikið.....þegar við komum var honum strax gefin 1,5 skammtur af Ventolini í friðapípu sem samsvarar 15 földum ventolin skammti og 7 st steratöflur og biðum við svo í tvo tíma þá var honum gefið eitthvað annað lyf í friðarpípu og aftur beðið í tvo tíma þá var honum aftur gefið Ventolinið og ef hann yrði ekkert betri eftir tvo tíma þá ætluðu þeir að leggja hann inn og gefa honum jafnvel súefni til að létta á því það tekur rosalega á þau að anda svona Frown

þau nota einhverja hjálparvöðva sem þau eru ekki vön að nota við eðlilega öndun, þá fara nasavængirnir út þegar þau anda að sér og innfall sést á milli rifja, guði sé lof fyrir litla kút var hægt að heyra betri öndun hjá elsku litla kútnum mínum um fjögurleytið  ......ohh hvað hann var orðin pirraður og vansæll greyið litla. Hann náði ekkert að sofna og var því kominn á verulegan yfirsnúning um fimmleytið farin að titra þvílíkt sem er víst aukaverun af lyfjunum, þá fengum við loksins að fara heim, fengum bara stera nesti með okkur og á ég að pústa hann með Ventolininu á tveggja tíma fresti í dag auk hinna lyfjanna sem hann er vanur að fá ,einnig var hann settur aftur á Losec magasýrutöflur út af bakflæðinu...........annars bara vera í sambandi á morgun fyrir endurmat.

Dagurinn í dag er búinn að vera honum mjög erfiður Crying hann er svooooooooo mikið ekki að vita hvernig hann á að vera, líður hreint út sagt hrikalega illa..........væntanlega eru sterarnir eitthvað að gera það að verkum að hann nær ekki að slaka á og sofa, vill bara vera í mömmufangi og orgar eins og hann sé á háum launum við það, orðin frekar raddlítill fyrir vikið :(...æji litli rassmus mömmusinInLove Hann er nú sofandi eins og er og vona ég að hann nái nú að hvílast eitthvað.

Ákvað að bæta inn myndum af litla kút frá því í dag, bara krútt InLove

Mai 241

                        Lítill lasarus Heart

Mai 252

           Angry lasarus með krepptan hnefa..

Mai 259

                   Vansæll Crying lasarus


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Sigurðardóttir

Æji litli anginn voðalega er maður lítill og lasinn. Vonandi hjálpa sterarnir honum eitthvað. Helena skánaði helling af þeim og er bara að vera fín.

Góðan bata og vonandi verður hann fyrr en seinna.

Gangi ykkur vel. 

Hulda Sigurðardóttir, 26.5.2008 kl. 12:01

2 identicon

....þetta kemur hjá honum - hann "argar" þetta úr sér - sterkur andlega og líkamlega eins og hann á kyn til Gunna mín - ég veit það. Ég veit líka að þetta er upp á við - og þú verður farin að fá nokkrar klukkustundir í samfelldan svefn áður en þú veist af!

Kveðja úr Holtagerðinu

Gurra

Gurra (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 12:39

3 Smámynd: Þórunn Eva

Knús á ykkur.... aww hvað við þekkjum þetta vel því miður.... bara leiðinlegt.... vonandi fer asminn að fara.... knús og koss...

og Guðrún þú stendur þig svoooo vel í þessu öllu... ekki auðvelt að standa einn í þessu... LOVE á þig sæta mín... 

Þórunn Eva , 26.5.2008 kl. 13:01

4 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

æi krúttið...Hundleiðinlegt að vera svona monsa og standa í þessu allann daginn;(  Villi Var alltaf svona inn á spítala og púst og stera og læti og mikið var þetta leiðinlegt......en þá greindist hann með jarðhnetu ofnæmi og annað og var Það skýringin á þessu hjá honum.....vonandi fer hann nú að lagast allur  hjá ykkur....En eg var að keyra framhja hjá ykkur i morgunn og var að hugsa um að reka inn nebbann og snýkja kaffi hehehehehhe en allavega hafið það gott og batnið sem fyrst ;) kveðja ur vogunum....

Halla Vilbergsdóttir, 27.5.2008 kl. 02:21

5 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Gurra :) já mikið hlakka ég til 2 júní hehe 

Halla :) Rektu bara við einhvern tíma þegar þú ert í Grindó, alltaf heitt á könnunni , ekki svo oft sem einhver nennir að reka við

Hulda og Þórunn :) TAKK TAKK knús á ykkur

Guðrún Hauksdóttir, 27.5.2008 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddulina

Höfundur

Guðrún Hauksdóttir
Guðrún Hauksdóttir

 Sumarið er tíminn :) Ég er 39 ára kona sem lætur sig varða málefni langveikra barna. Stolt 5 barna móðir og eiginkona .

garuska@simnet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 933

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • 172
  • 149
  • 144
  • 095
  • oktober 062

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband