Kaldir karlar

Vááá hvað það fer hrikalega fyrir brjóstið á mér þegar fullorðnir karlmenn leyfa litlum drengjum ekki að gráta ef þeir meiða sig............ég varð vitni af því í dag að lítill krúttköggull ca. ,3-4 ára drengur datt og fékk smá blóðnasir og fór að vonum að gráta. Ohh mér þykir það bara svo eðlilegt að hann hafi farið að gráta þessi litli stúfur því hann hefur eflaust meitt sig og sá blóð Angry

En hvað gerði pabbinn.............hann byrjaði á því að sussa á hann og segja svona svona þetta er ekki neitt uss uss uss hættu þessu væli, þú ert bara eins og einhver lítil stelpa Devil Litli snáðinn reyndi eftir fremsta megni að hætta að gráta en átti nú svolítið erfitt með það, æji litla krúttið,,,,, ég kenndi í brjósti um hann. Úfff... hvað ég þoli ekki svona karlmenn sem þykjast vera svo miklir “harðjaxlar” af hverju má lítill drengur ekki gráta ef hann meiðir sig rétt eins og lítil stelpa, ég tel þetta vera afskaplega eðlileg viðbrögð við sársauka, bara ósköp eðlilegar  tilfinningar sem brjótast út við þessar aðstæður..........en það eru ekki allir karlmenn sem þola það að sjá annað fólk gráta, ekki einu sinni lítil börn með eðlilegar tilfinningar. Mín skoðun er sú að þessir menn sem bregðast svona við þegar barn meiðir sig og fer að gráta, eru menn sem eru karlrembur með bældar tilfinningar ( hefðu bara átt að vera uppi á ísöld, eru með svooo kalt hjarta Shocking hehe) Er kannski enn verið að reyna að ala upp karlrembur, nei, ég trúi því ekki....Það veit minn maður að ég þoli illa svona “hörkutól” því ég hef alveg látið mína skoðun í ljós við hann þegar minn sonur meiðir sig þá á hann það til að gera bara lítið úr meiðslunum og segir t.d nei hvað er að sjá datt fóturinn af ef hann meiðir sig í fætinum einnig á hann það til að segja við eldri soninn það eru bara stelpur sem væla og ekki finnst honum nein not í plástrum Cool nema þegar um stór sár er að ræða en ég tel að plástur geti svo vel hjálpað til við lítil sár, bara svona sálarlega séð hahaha. Af hverju ekki að taka bara drenginn upp og leyfa honum að njóta þess að láta hugga sig og leyfa honum að finna að okkur þykir vænt um hann...Þessir menn eru eflaust svona vegna uppeldis sem þeir hafa fengið, þetta virðist ganga svona mann fram af manni. Minn maður vill ala syni okkar upp sem harða karlmenn en ég vil ala þá upp sem mjúka menn Smilehahaha ,,,, ekki auðveld staða en heldur ekki svo slæm því kallinn er aldrei heima LoL muhahaha.  Held að það sé meira virði að leggja áherslu á eitthvað annað en að vera harður af sér. Ég er feitari og frekari svo þetta verða nú eflaust hinir mýkstu menn þegar þeir eldast Tounge hahaha Ég veit að minn ekta eiginmaður les bloggið mitt og tekur því alveg örugglega ekki illa að ég sé að skrifa um hann hér því hann viðurkennir það fúslega að vera karlremba og skammast sín ekkert fyrir það (ég skammast mín nú stundum fyrir það )Blush hahaha.... Hann er bara öðrum góðum kostum gæddur þessi elska InLove Strákar eiga að gráta og sína tilfinningar sínar rétt eins og stelpur Smile Hana nú sagði hænan og gaggaði í hanann..

Knúsiknús á ykkur fallega fólk sem nennið að lesa tuðið í mér Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Björk Solis

Eg er alveg sammala ther.

Ásta Björk Solis, 6.6.2008 kl. 17:33

2 identicon

Sko mína..........ég er svo sannarlega sammála þessari ræðu, þetta er bara eins og talað út úr mínu hjarta. Og ég er ekkert hrædd um að drengirnir mínir hafi haft slæmt af því af hafa fengið að gráta alveg eins og þá lysti.  

Kristbjörg Clausen (IP-tala skráð) 6.6.2008 kl. 21:07

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Mestu karlremburnar þoli ég bara engan veginn, litlir strákar mega líka gráta
Meirað segja ég græt stundum þegar ég meiði mig, reyndar oftast þegar mér bregður hrikalega ( klessi með framtennurnar á sundlaugabakka t.d. sem gerðist fyrir örugglega 3 árum..)!

Ég reyni að ala bekkjarbræður mína og kærasta aðeins, því mér finnst ég mega það, búin að vera með flestum í bekk frá því í 1. bekk svo það ætti að leyfast!
Mér tekst ekkert allt of vel með bekkjarbræðurna en kærastinn er mun betri, enda ekki skrítið að velja hann umfram hina..
Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 6.6.2008 kl. 23:33

4 Smámynd: Hulda Sigurðardóttir

Það er bara mannlegt og eðlilegt að grá finnst mér og ekkert að því. Karlmenn gráta líka þó svo að þeir kannski sýna það ekki alltaf en ég hef nú staðið manninn minn að því nokkrum sinnum

Hulda Sigurðardóttir, 6.6.2008 kl. 23:34

5 identicon

Æi, aumingja Bessi, þú ert krútt og góður strákur Bessi minn

Kristbjörg Clausen (IP-tala skráð) 7.6.2008 kl. 11:17

6 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Ásta Björk: gott að einhver er sammála þessu :) 

Róslín mín góð viðleitni já þér að reyna ala þessa bekkjabræður þína upp  hahaha

Já Hulda, karlmenn hafa líka rétt á því að gráta ef þeim líður þannig :)

Silfurmjöðm mín yndislega frænka, hann Bessi minn hlær nú bara af þessari færslu minni  krúttið er ekki að taka þessu alvarlega

knús á ykkur skvísur

Guðrún Hauksdóttir, 8.6.2008 kl. 12:10

7 Smámynd: Þórunn Eva

já maður á bara að leyfa þeim að gráta ef þau þetta jeremías... knús knús og koss á þig duglegust........

Þórunn Eva , 8.6.2008 kl. 12:48

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Tjah, einhver verður að reyna að ala þá upp....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.6.2008 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddulina

Höfundur

Guðrún Hauksdóttir
Guðrún Hauksdóttir

 Sumarið er tíminn :) Ég er 39 ára kona sem lætur sig varða málefni langveikra barna. Stolt 5 barna móðir og eiginkona .

garuska@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 945

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • 172
  • 149
  • 144
  • 095
  • oktober 062

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband