Jææææjja..............

Ekki líst mér neitt sérdeilis vel á það sem hann Ívar var að segja á Bylgjunni í morgun........hann var að lesa einhverja frétt frá USA að flugfélög þar væru að spá í að breyta flugfargjöldum í flugmiða pr kíló þ.e.a.s hvert flugfargjald miðast við þyngd hvers og eins.........já, t.d ef við fjölskyldan ætlum að skella okkur út í fjölskylduferð þá væri ekki hægt að greiða fyrir miðana fyrr en öll fjölskyldan væri  búin að stíga á vigtina hjá flugfélaginu....omg þetta segja þeir að verði að gera vegna hækkandi olíuverðs. Jú, eftir því sem farþegar eru þyngri því meira eldsneyti. jesemías

Hvað skyldi kosta fyrir mig sem er um 60 kg til Ameríku með Icelandair ef þeir tækju þessa vitleysu upp............við skulum sjá, getur þú komið við á einhverri skrifstofunni okkar og stigið á vigtina svo ég geti gefið þér upp verðið á fargjaldinu LoLhahaha,,,,,,, jesemías minn,,,,,,þvílíkt bull........eiga bara þeir sem eru grannir eftir að ferðast í framtíðinni?

 

Smá fréttir af litla kútnum, hann er bara nokkuð brattur þessa dagana utan vírusútbrota um allan búk og í andliti, eyrun eru bara semí og lungu bara þokkaleg......hiti hefur ekki farið yfir 38.5 síðan fyrir síðustu helgi sem er ansi flott........... það er eitthvað svo miklu bjartara yfir honum þessa dagana, brosir meira, geðbetri og ekki eins kvartsár Happy þurfti samt að kíkja með hann til doksa í gær og tók það aðeins þrjá og hálfan tíma í bið á biðstofunni,,,,,alltaf stuð á biðstofum lækna Smile hehe

Það er ekki víst að ég geti verið dugleg í blogginu næstu daga,,,,,,,,,,,,af hverju? jú það er svo brjálað að gera hjá mér í trampólín skiptiskipulagi að það er ekki normal. Er að vísu komin með klukkuna úr eldhúsinu til þess að nota sem skiptitíma svo allir geti verið jafn lengi hahaha það eru náttl allir sem vilja prufa og til þess að koma í veg fyrir leiðindi meðal barnanna í hverfinu þá nota ég klukkuna og leyfi tveimur að hoppa í einu 10 mín í senn..........þannig eru allir sáttir Grin hélt að þetta væri ekki svona vinsælt ennþá, þar sem þetta er við annað hvert hús liggur við....en svona er þetta nú bara ;)

Einnig er ég með Jóhann Gabríel í aðlögun á leikskólanum og með aukabarn, Fanný snúlluna hennar Mundu vinkonu,svo við sjáum til hversu dugleg ég verð næstu daga að blogga :)

Þangað til næst krúttin mín Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Úff, ekki myndarlegt að ferðast með minni fjölskyldu þá til Bandaríkjanna....

En bíddu bíddu, á ekki að rukka á trampólínið, það virkar best þannig......

Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 5.6.2008 kl. 00:08

2 Smámynd: Hulda Sigurðardóttir

Vó eins gott að icelandair sé ekki búin að taka þessa vitlaysu upp hér. Ég var að pannta mér far í gær til Orlando og borgaði 258.450 kr fyrir flug fram og til baka. Við förum út 22 ágúst og heim aftur 3 sept. Ég hlakka svo til

Ég bloggaði ekki um þetta þar sem að við ætlum ekki að segja tengdó frá þessu eða mág mínum af því að þau verða í íbúðinni við hliðina á okkur og við ætlum að koma þeim á óvart

En ég læt bara trambolínið duga sem nágrannarnir eiga enda eru str´karnir þar alla daga.

Hulda Sigurðardóttir, 5.6.2008 kl. 09:55

3 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Róslín mín ég ætla nú ekki að rukka blessuð börnin  

Hulda mín ég öfunda þig feitt af því að vera á leið til Orlando :( en samgleðst þér.  Hún Thelma mín bauðst til þess að gerast grænmetisæta ef þetta yrði sett á hjá Icelandair  skella bara allri fjölskyldunni í megrun svona til vonar og vara :) hahaha

Guðrún Hauksdóttir, 6.6.2008 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Skruddulina

Höfundur

Guðrún Hauksdóttir
Guðrún Hauksdóttir

 Sumarið er tíminn :) Ég er 39 ára kona sem lætur sig varða málefni langveikra barna. Stolt 5 barna móðir og eiginkona .

garuska@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 946

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • 172
  • 149
  • 144
  • 095
  • oktober 062

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband