Þurfa allir að vera þvengmjóir ?

Ég bara spyr, því eftir að ég átti mitt 5 barn sem var fyrir ári síðan ,hef ég bætt á mig rúmum 4-5 kg sem ekki hafa farið af mér aftur . Hef alltaf verið um 58 kg en er núna 62,7 kg :( ekki hefur mér liðið neitt sérstaklega illa yfir þessum nokkru aukakílóum eða þessum auka maga sem ég eignaðist þegar ég átti Svenna baby.........þangað til ég fékk í FJÓRÐA sinn þá spurningu í síðustu viku hvort ég væri enn og aftur komin af stað ( aldrei myndi ég þora að spyrja svona )hehe ég er EKKI komin af stað aftur og ætla ég mér ekki að koma með fleiri börn, þó svo að þau séu yndisleg í alla staði :) Mér finnst fólk vera orðið pínu upptekið af því að allir eigi að vera steyptir í sama mót og vera ofur grannir.....er bara aðeins búin að vera óánægð með sjálfa mig undanfarið vegna þessara spurninga, ætla mér samt ekki að leggjast í neitt þunglyndi yfir þessu.

Hafið það gott elskurnar Heart


Mamma mía

Fór að sjá þessa líka snilldar mynd á sunnudaginn.......Vááááá hvað ég hló mikið. Skottunni minni fannst ég að vísu hlægja allt of mikið Shocking HAHAHA var hálf hneyksluð á tímabili.....Við fórum 13 saman á aldrinum 6 - 40 ára og held ég satt að segja að allir hafi skemmt sér konunglega Grin þetta er mynd sem ég mæli eindregið með sem góðri fjölskylduskemmtun :) Væri alveg til í að komast á þessa Grísku eyju :)

Eruð þið búin að sjá þessa bráðskemmtilegu mynd ? 

Að allt öðru ,verð að segja ykkur frá einni lítilli 6 ára sem var með foreldrum sínum í heimsókn úti á landi í vikinni. Þau eiga hund sem heitir Nero og litla skottan fór í smá göngu með hundinn sinn, hafði hún heyrt af því að annar hundur sem var kvenkyns ætti heima í næsta húsi við frænku hennar svo mín bara bankaði uppá og spurði hvort hundurinn væri heima því Nero langaði svo að fá að ríða henni LoL hahaha bara snilli þessi snúlla.


englakroppakrúttið mitt er eins árs í dag

Já, það er víst liðið eitt ár frá því þessi litli krúttköggull kom í heiminn InLove  hann kom í heiminn með hraði, þessari elsku lá greinilega mikið á því ég vaknaði heima hjá mér um fjögurleytið og hann var fæddur rétt fyrir klukkan fimm á sjúkrahúsinu í Keflavík ( bý í Grindavík).

Við foreldrarnir vorum ein þegar hann fæddist því við vorum bara rétt komin inn í andyri fæðingardeildarinnar þegar hann skaust í heiminn....... litli anginn skaust því beint í buxurnar hjá múttunni sinni sem sat í hjólastól því hún gat ekki gengið, var svoooo slæm í grindinni, ljósmóðirin var því fjarri góðu gamni þegar hann mætti á svæðið, var að aðstoða aðra konu sem var að fæða í baðinu. Tókum við því bara sjálf á móti honum þangað til ljósan kom sem var að vísu mjög fljótlega, því sú sem var á vakt hafði kallað aðra út þegar ég hringdi og boðaði komu okkar.Smile ekki það að allar mínar fæðingar hafa alltaf gengið eins og í lygasögu, hef átt þau öll innan klukkutíma frá fyrstu alvöru verkjum Halo ekki amalegt það.

Þessi litli gleðigjafi hefur sko þurft að hafa fyrir lífinu er nánast búin að vera veikur frá fæðingu :(

Júlí 005

Nýfæddur prins, múttan enn í hjólastólnum Smile

Júlí 586

Eins árs prins á hjólinu sem við gáfum honum í afmælisgjöf Heart


Er ekki alveg með nennuna í að blogga

Er ekki alveg með nennuna í að blogga þessa dagana, kannski nennan komi fljótlega aftur:) hehe les samt alltaf reglulega hjá bloggvinum en kommenta ekki alltaf :(

Annars héldum við upp á afmæli prinsanna um síðustu helgi, rosalega sem við vorum ánægð með það að mér skildi hafa dottið í hug að halda veisluna í Selskógi, krakkarnir voru þvílíkt hamingjusöm með það Smile það komu um 40 manns, ekki komust nú allir enda sumartími. Grilluðum við bara pylsur með allskonar gummelaði ( þurftum að vísu að drösla grillinu okkar á staðinn) bestar þykja mér pylsur með kartöflusalati , bbq sósu og dijon hunangssósu nammi namm :) einnig pantaði ég tvær afmæliskökur Bangsimon fyrir krúttmund litla og StarWars fyrir krúttmund stóra Kissing Star Wars kakan var nú alveg að hitta í mark hjá gaurunum , við hin fengum okkur smábarnaköku eða Bangsimon :) hehe... krakkarnir kátir með að geta bara valsað um í góða veðrinu þau fóru t.d í fótbolta ( fórum með markið hans Jóa þangað) röltu inn í skóginn, flugu flugdreka og fl.  barasta hinn ánægjulegasti dagur....þeir fengu líka svakalega fínar afmælisgjafir...... takk æðislega fyrir allar fallegu gjafirnar elskulegu vinir og vandamenn :) Knús og kossar

Jæja, þá er ég búin að endurheimta hana Thelmu mína frá Genf, hún var þar í tvær vikur, allamalla hvað við söknuðum hennar :) skottan er svo mikil dramadrottning að hún sofnaði nokkrum sinnum með mynd af Thelmu í fanginu æji bara sætt, hún elskar systur sína ekkert smá mikið HeartJóa var nú líka pínu illt í hjartanu sínu af söknuði. Það er nú augljóst mál að mín kona er að fá hvolpavitið hahaha Grin kannski ekki skrýtið er að verða sextán ára ( alltaf litla deppan mömmu sín) það fyrsta sem hún sagði við mig þegar ég talaði við hana í síma var: mamma.... þjálfararnir eru sko ógisslega hot :) hehe..... er varla búin að tala um annað síðan hún kom heim :) staldrar hún bara heimavið í þrjár vikur og er svo þotin til Þýskalands :(

Guð veri með ykkur.

Úpps.... ég gleymdi, þið ykkar sem höfðuð áhyggjur af því að ég væri að ganga frá drengjunum mínum með því að halda upp á afmælið þótt þeir væru veikir...þeim varð ekki meint af Joyful Jói er að verða hitalaus og litli kútur er allur að koma til :)


Afmæli :)

Hann Jóhann Gabríel yndislegi drengurinn minn er 4 ára í dag Wizard ......omg hvað tíminn er fljótur að líða, komin fjögur ár frá því ég eignaðist þennan gullmola. Hann hefur nú aðeins þurft að hafa fyrir lífinu í veikindum sínum en alltaf verið ótrúlega duglegur InLove Við byrjuðum daginn á því að fá okkur súkkulaði köku...... það má sko alveg þegar svona frábær strákur á afmæli síðan voru pakkarnir frá okkur mömmu og pabba og systkinum, ömmu og afa í Kína opnaðir Smile váá hvað minn maður var ánægður með afmælisgjafirnar....... nýtt stórt hlaupahjól með alvöru 10" dekkjum,playmó dreka, playmó risaeðlu og playmó vinnubíl. Svo kíktu Elín systir og Alexander í morgunkaffi með afmælisgjöf handa prinsinum fullt af sjóræningjadóti ekkert smá flott.

Við ætlum svo bara að njóta veðurblíðunnar í dag Cool æltum sennilega að halda upp á afmælið hans Jóa og litla kúts næsta sunnudag í Selskógi þ.e.a.s ef veður leyfir, ætlum að grilla ofan í gestina Smile gaman gaman. Litli kútur verður eins árs þann 26 júlí.

Njótið lífsins elskurnar Heart

Júlí 298

Jóhann Gabríel yndislegi afmælisstrákur, þessi mynd er tekin í Selskógi núna í sumar InLove


12 júlí

 

Ussuss  allt of langt síðan síðast. 

Síðastliðin sunnudag hóaði ég stórfjölskyldunni saman á Þingvelli með nesti og nýja skó, geggjaður dagur í 23 stiga hita........vááá hvað ég elska þessa fjölskyldu mína InLove  Svo á mánudeginum fórum við ég og bóndinn með krakkana í Selskóg og nutum veðurblíðunnar :) á þriðjudeginum skunduðum við svo aftur á Þingvelli þ.e.a.s. ég og börnin ,áttum þar enn einn yndislegan dag með frændsystkinum. Klárlega komu Þingvellir sterkir inn þessa vikuna Smile æji það er svo gaman að vera saman í góðu veðri.

Krúttmundur litli bara úti þrjá daga í röð W00t þá var það líka komið hjá honum, byrjað að kurra í honum og hann sólbrenndur á höndum og í andliti :( vorum við litli kútur því inni það sem eftir var vikunnar.

Fimmtudagurinn var frekar erfiður, ég og skottan fórum í kyrrðarstund í kirkjunni .  Lítil sönn hetja Andri Meyvantsson tapaði því miður stríðinu við illvígan sjúkdóm aðeins 6 ára gamall. Kyrrðarstundin var haldin fyrir jafnaldra Andra og Sindra bróður hans. Mikið sem ég finn til með foreldrum hans og bróður. Andri og Hulda Karen voru búin að vera saman í leikskóla og skóla frá því þau voru bara lítil stýri, við þekktum hann svo sem ekki mikið utan þess.

Set hér inn mynd sem tekin var af Andra og skottunni í fimm ára afmæli skottunnar.

Desember 077

       Heart Blessuð sé minning hans Heart

Jæja þá er það 12 júlí afmælisdagur margra, þar á meðal mín. Jamm ég á víst afmæli í dag Smile einnig á hann pabbi minn afmæli í dag nú svo á hann Daníel Ísak sonur Mundu vinkonu líka afmæli, Gunna Munda Systir hans Bjössa mágs á líka afmæli í dag. Svo eiga Elín systir og Bjössi hennar ekta maður brúðkaupsafmæli í dag InLove Til lukku öll með þennan frábæra dag :) Ekki gat litli stúfur sleppt því að senda múttuna sína með sig til doksa í dag :( en múttan er ekkert að erfa það við prinsinn því hann varð jú að fá sýklalyf því hann er komin með í eyrun eina ferðina enn.....litla skinnið.


oggupons lífsmark :)

Hef bara ekki nennt að setjast við tölvuna :(  Kallinn atvinnulaus eins  og er :/ hefur því verið heima í rúma viku......hann er bara að spá í að gerast verktaki þangað til hann klárar sitt meistaranám sem verður um áramót. Æðislegt á þessum síðussssstu og verstu .) hehe maður opnar ekki orðið fyrir útvarpið öðruvísi en heyra eitthvað neikvætt.....Hér er kreppa um kreppu frá kreppu til ríkidæmis Grin hahaha er svo fyndin ég veit :)

Verð að setja hér inn smá frá skottunni minni. Við vorum með matarboð síðustu helgi og sátu allir við borðið voða uppteknir af því að borða þegar mín kona segir allt í einu......þið eruð bara öll dónar sem sitjið hérna við þetta borð ...... Haaa sagði ég af hverju segir þú það.......ég var sko að hnerra og ekkert ykkar sagði guð hjálpi þér við mig LoL hahahaha

Knús og kossar á ykkur yndisleg Heart


Erfiður en ánægjulegur dagur :)

Þessi dagur var frekar erfiður en jafnframt skemmtilegur,,,,,byrjaði á því í morgun að skutlast með Jóa spóa á íþróttahátíð í leikskólanum, hann er loksins orðin hitalaus :) mætti svo aftur í leikskólann um kl:10 til þess að taka myndir af hinu árlega hlaupi leikskólabarnanna. Lögreglubíll leiðir hlaupið hjá þeim, það þykir þeim alltaf jafn spennandi Smile eftir hlaupið fara börnin svo í allskonar íþróttaleiki og þrautir :) Um tvöleytið sótti ég afar hamingjusaman leikskólastrák.

Skottan mín fékk þessa líka snilldar hugmynd um hádegi að bjóða hverfisbörnum í grillpartý OMG áður en ég vissi af var ég búin að samþykkja að búa til boðsmiða í tölvunni sem hún svo ætlaði að bera út í húsin Cool jájá um sexleytið grillaði ég um 30 pylsur ofan í krakkaskarann (með krúttmund í fanginu,hvað annað) hingað komu ca. 25 manns í dag en 19 í grillpartý  LoL Mikið gaman og mikið fjör hjá þessum krökkum, skelltu þau sér í vatnsstríð með vatnsblöðrum og hjólakeppni.

Hjólakeppnin  fór þannig fram að þau stilltu sér öll upp við rásmark og hjóluðu einn stóran hring og vann sá sem fyrstur kom í mark :) Jóhann Gabríel var yngstur og sá eini sem enn er með hjálpardekk á hjólinu sínu og hvað haldið þið hann var auðvitað laaaang laaaang síðastur í mark og þegar minn maður loks kom í mark (aleinn ) þá hrópaði hann ég er fyrstur ég vann.......æjjji þá voru hin öll komin í mark og farin annan hring LoL HAHAHA litla krúttið mitt svooo sæll og glaður.... allir fengu svo ís á eftir. Klukkan 21 voru þau svo farin að sofa alveg rosalega ánægð með daginn.

Krúttmundur átti hins vegar ekki eins ánægjulegan dag var frekar ergilegur en tók samt virkan þátt í þessu öllu í mömmufangi. Mömmuskrokkur líka búin á því :( Tekur mikið í eyrun, en ég stíliseraði hann nokkuð í dag og hresstist hann þá svolítið við......það var bara ekki nokkur leið að hanga inni í svona blíðskapar veðri með litla kútinn :) vona að honum verði nú ekki meint af.

PS..Byrjaði að skrifa þessa færslu um kl 22 í gær og er að enda núna kl 01:30 þar sem litli kútur er frekar óhress og alltaf að vakna þá hefur þessi færsla gengið frekar seint og illa hjá mér......um miðnætti þurfti ég að taka legginn því það var farið að blæða og hann kvartaði sáran undan honum,,,,hringdi á lansa, sögðu þau mér bara að taka hann :(

Knús inn í nóttina Heart

 


Krúttmundur kvartsári

Þessi dagur var frekar erfiður hjá krúttmundi litla :( eftir lítinn sem engan nætursvefn vorum við mætt á Lansa rétt fyrir níu í morgun, byrjuðum á því að hringsóla í ca 10 - 15 mín í leit að bílastæði GetLost getur það verið að erfitt sé að fá stæði þar hmmm. 

Lena tók á móti okkur og byrjaði að hafa til lyfin meðan læknanemi skoðai lilla boy, kom þá í ljós að hann er kominn með eyrnabólgur í bæði eyrun sín, lungun eru bara þokkaleg.....einnig er hann með einhvern vibba í kringum annað augað og munninn en hún gat svo sem ekki sagt mér hvað þetta er ;/ eftir skoðun var komið að því að finna hentuga æð fyrir legginn, auðvitað gekk það ekki vel frekar en fyrri daginn og var minn maður ekki neitt sérstaklega ánægður með þessa meðferð, láta stinga sig aftur og aftur Sick hann lét þær sko í sér heyra......æji :( hvað mér þykir þetta alltaf jafn erfitt.

Hann var frekar ergilegur í dag og grét mikið, mátti helst ekki yrða á hann og vildi hann bara láta mig ganga með sig um gangana úffff hvað ég er orðin þreytt í skrokknum, aftur farin að þurfa að taka íbufen við verkjum í öxlum og baki, það tekur á að ganga í nokkra tíma með 10 kíló nánast alla daga. Hann sígur sko þokkalega vel í þessi elska :) Lena gaf honum svo tvo stíla og leið honum þá aðeins betur :)

Loks kom höfðinginn hann Ásgeir, kíkti á kauða og hélt jafnvel að þetta hjá auganu og munninum væri handa- fóta og munn vesenið (ginið og klaufinn) Ásgeir tók sýni til ræktunar úr nefinu á Krúttmundi og ákvað að gefa honum sýklalyf í æð út af eyrunum og vildi hann að leggurinn yrði ekki tekin því hann á að fá aðra lyfjagjöf í æð á fimmtudaginn. Þá ætlar hann að kíkja betur á hann...

Ekki hefur mér gengið neitt sérlega vel með þessa færslu því krútti litli er alltaf að vakna svo ég nenni ekki meiru í kvöld. Er líka orðin frekar dofin af þreytu.

Góða nótt og guð geymi ykkur Heart

 


Þreytt og lööööt :)

Ekki var þetta alveg það sem ég þurfti, litli kútur komin með 39°c hita og svaf lítið í nótt. Thelma mín var að vinna til miðnættis svo ég fór ekki inn fyrr en um eittleytið og var vöknuð aftur um klukkan hálf fjögur í nótt ,litli kútur grét sárt og var komin með hita, reyndi að ganga um gólf með hann inni í herbergi í ca klukkutíma ( vil helst ekki að hann fari fram á nóttunni) en gafst þá upp og fór með hann framm........... :( skottan vaknaði um hálfsex því ég hafði leyft henni að kúra í mömmu holu og vaknaði hún þegar ég ætlaði að reyna að leggja hann. Um hálfsjö náði hann loks að sofna en þá var skottan ekki að ná að sofna aftur þannig að við fórum fram og byrjuðum bara daginn snemma. Jóhann Gabríel og Thelma voru svo vöknuð um sjö því Thelma var að fara að vinna.... Núna er ég svoooo þreytt og löööööööt að mig langar helst að Sleeping sitjandi :( Held ég að skottan eigi eftir að sofna snemma í kvöld. 

Við eigum að mæta í þriðju lyfjagjöfina í fyrramálið kl 9 Gasp æjjjjjjjji hvað ég er ekki að nenna því, það er spáð svo góðu veðri....langar svooo að fara að planta sumarblómum í potta. það verður víst að bíða betri tíma Smile Æjjæjjóóó aumingja ég Wink hehe

knús Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Skruddulina

Höfundur

Guðrún Hauksdóttir
Guðrún Hauksdóttir

 Sumarið er tíminn :) Ég er 39 ára kona sem lætur sig varða málefni langveikra barna. Stolt 5 barna móðir og eiginkona .

garuska@simnet.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • 172
  • 149
  • 144
  • 095
  • oktober 062

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband